Glöggt er gests augað

28.3.07

.vejer

Jæja ættla bara að leyfa ykkur að sjá veðrið mitt næstu daga.. lalalallala já og meðan ég man það er mars

hann Mummi klukkan 22:33

27.3.07

.stones

jæja þá er ég stoltur eigandi miða á Roling Stones í parken í sumar.. geggjað
hann Mummi klukkan 11:25

26.3.07

.smá óorginal

já.. ég var að lesa blogg hjá vinkonu minni þegar ég rakst á teiknimynda strípur og fór og skoðaði meira og varð þetta líka svaka hrifinn þannig að ég ættla að apa bara eftir henni og smella inn nokkrum og svo kann að vera að það komi meira af þeim í framtíðinni..

Já frekar mikill töffari að reykja neðanjávar

Sportið getur gert mann óðann

ups


Bara fynndið..
hann Mummi klukkan 12:06

25.3.07

.sumartími

jæja þá kom að því sumartími er þá gengin í garð þannig að við erum þá komin 2 tímum á undan íslandi, ég er afar sáttur við sumar tíman núna tildæmis er sólsetur kl 19:31 þannig að dagurinn var lengir á augnabliki voða næst bara... og svo skemmir ekki að hafa út núna sól og 13 stiga hita til að halda upp á þetta fyrir utan að ég þarf að fara vinna eftir smá.. en maður tekur því bara eins og hverju öðru hundsbiti...

astalavista baby
hann Mummi klukkan 12:17

18.3.07

.dauðalistinn

eins og sjá má þá hefur fjölgað á dauðalistanum mínum en ég varð fyrir því (ó)láni að aka yfir 2 héra í síðustu viku og hef þar af leiðandi bæt þeim við...
hann Mummi klukkan 11:52

14.3.07

.10,12,14,16

Já það er heldur farið að hittna hjá okkur núna.. hitinn fór í 16 gráður hérna í borginni um helgina og drifum við okkur nú út til að njóta veðursinns, fórum í Charllotenlund virkið sem er skammt fyrir ofan köben og var gaman að koma þanngað.. sátum nú bara lengi á bek og horfðum á fólkið og fjandi er nú mikið af skrítnu fólki sem hættir sér út um helgar, en við ættlum að fara þanngað aftur þegar það sumrar meira. svo var nú bara slæpingur um bæjinn.

og á leiðinni heim þá fórum við inn í lítinn garð og þar sáum við hvar að hellingur af blómum var sprunginn út læt fylgja með myndir af þeim..



og svo líka smá nærmynd...



og svo smá svona listar mynd.. alltaf gaman af þeim líka..



já og af óeirðum þá er nú bara ekkert að frétta þannig að það er bara allt rólegt í þeim málum... og maður bara að bíða eftir að sumarið komi með fullum styrk...´

jæja farinn út í sólina...
hann Mummi klukkan 10:59

7.3.07

.sussss

já heldur er farið að róast í borgini núna og er maður alveg hættur að heyra í sprengjum og vélbyssum en sírenur eru sko heldur betur en til staðar, erfitt er að komast um borgnina þar sem margar götur eru lokaðar og þess hátar ástandi.

ég er að vinna við hlið aðallöggustöðvar köben og þar eru svo margir löggubílar að ég kemst ekki yfir að telja þá alla þegar þeir eru að fara í útkall þá fara ekki bara einn heldur þetta 4-5 bílar af stað.

svo núna er maður að horfa á ungdómshúsið rúlla eftir götum borgarinnar á vörubílum sem er svo sem ekki frétt næmt en þeir eru í lögregglu fylgd til að ekki sé ráðiðst á þá, það er bara skondið.. fyrst koma þetta 4-6 móterhjól til að blokera götuna og svo kemur einsog 2 óeirða löggubílar og svo einn vörubíll og svo annar óeirðar löggu bíll og svo annar vörubíll og svo endar þetta á þetta 3 löggubílum eða svo.. nærri meira af löggu en þegar Bush er að flækjast. svona er þetta nú orðið allt saman.

Ekki vilja menn segja að þetta sé allt búið enn og verður en mikill lögregglu viðvera í borgini

húsið er núna búið að jafna við jörðu þannig að það er búið
og fyrir þá sem þekkja mig þá tek ég mér alltaf gott skláldaleyfi þegar ég er að skrifa til að gera þetta nú skemmtilega.

hann Mummi klukkan 16:44

3.3.07

WW danmark

já stríðið heldur áfram, síðustu fréttir sögðu að búið væri að handtaka yfir 600 manns.

búið er að brenna haug af bílum og örðu til fallandi sem hægt er.. í nótt var enn ein óeirðar nóttin með tilheyrandi látum. En sem betur fer er þá er hægt um þetta á daginn þannig að það er hægt að leggja sig fyrir skothríðinni og sprengjunum sem eru að eru að springa um allan bæ



og á myndini hér fyrir ofan er verið að henda eins og einum mólítóf kokkteil í löggubíl og hefur lögguni verið mikið heitt í hamsi síðan skil ekki afhverju.

við hjúinn fórum út í dag til að skoða þetta allt saman og það voru víst mótmæli niðri á ráðhústorgi sem við ákváðum að sjá, ekki svo margir mættir eftir vill 3þ manns og svipað af frétta mönnum, eftir tilheyrandi ræður og baráttu söngva þá var haldið í kröfugöngu norður á Norðurbrú og gengum við svona í humátt á eftir svona til að mótmæla gönguni.

en ákváðum að forða okkur þegar skothríðin byrjaði aftur og sáum við að all nokkrir lágu í valnum, en það var skotið úr þyrlum bæði með vélbyssum og rakettum á hópinn haugspennandi barasta... og svo er að sjá hvað gerist í aften.. þá fer maður nú máski og hendir grjóti í þessa fjandans krakka.. svona til að styðja við bakið á lögguni..



Þetta var víst eitt sinn bíll



en þessum ungu krökkum verður alla vega ekki kalt..
hann Mummi klukkan 20:54

1.3.07

.styrjaldar ástand

Í dag vaknaði ég við mikil læti og stanslausar sírenur sprengingar og mikið þyrlu flug yfir bænum, var fljótur að setja á frétta rásina og sá þá að það er búið að rýma úngdómshúsið og tók það ekki nema um 20 mín enda var komu þeir þangað í comando stíl var slakað niður á þak hússins af þyrlu og réðus til atlögu og voru búnir að ná völdum á húsinu á 20 mín en svo byrjaði gamanið þegar fólk fór að fata að búið var að ná húsinu.

Byrjuðu við þetta mikklar óeyrðir um alla borg og þegar ég lít hér yfir má sjá reykja mökk víðsvegar um borgina og margar þyrlur á sveimi og svo valla hægt að tala saman fyrir sírenuvæli, og fyrir stundu fóru fyrstu hermennirnir að koma á göturnar og skömmu eftir þá sá ég fyrsta skriðdrekan og síðan hafa þeir verið að rúlla inn í allan bæjin sem og önnur brynvarinn stríðstól




víða má sá að búið er að koma upp sandapoka virkjum til að verjast þessu og eru allir hvatti til að halda sig innana dyra sem þurfa ekki að vera á ferli

er talað um að setja á útgöngubann þegar líður á kvöldið til að sporna við frekari óeyrðum, við hjá póstinum höfum reynt eftir mesta megni að vinna okkar vinnu en búið er að kasta grjóti í all nokkra bíla, hef ég heyrt að minnstakosti sé búið að kveikja í 2 þeirra, ekki hef ég frétt af sárum minna manna og erum við að hugsa hvort að við förum eitthvað meira út í dag að sækja póst.

já það er ekki tekið með sældinni að búa í stórborg

síðustu tölur af hvað búið er að handtaka marga skipta hundruðum og er vitað að það eru margir í nágranna löndunum að koma til Kaupmannahafnar til að taka þátt í þessu stríði.




eins og sjá má þá er ekki lognmolla í gangi

meiri fréttir koma svo síðar...
hann Mummi klukkan 16:22