Glöggt er gests augað

31.8.05

.farvell

Var að kveðja vinnufélaga og góðan vin minn sem er að fara til kína og svo til Mongólíu og svo til Kambódeu og endar í Vietnam og tekur þetta hann og frillu hanns næstu 2,5 mánuði... ekkert smá stuð hjá honum... en ég og Franz vinnu félagi áhváðum að kveðja hann smá og hittumst á Jernbane Kaffe eftir vinnu.. en það liggur við Hovedbanagaard og fengum við okkur nokkra öl sem Morten bauð af feng sínum.. til að kveðja okkur félagana.. var talað um allt þetta góða og vorum við að reyna að ráðleggja honum hvernig hann ætti að komast hjá því að fá Fuglaflensu...og eiðni á þessu ferðalagi sínu.... og að heimta að hann komist í tölvu sem oftast til að leyfa okkur að fylgjast með... en svo fórum við að tala um eitt og annað og barst talið að Julekandender þeirra Nategalene... (takk Guðný fyrir að kynna mig fyrir þessu meistara verki.. er búinn að fjárfesta í þeim á DVD síðan ég kom út) og var verið að fara með alla frasana úr þessu stóran hlutan af kveldlinu... geggjað stuð verð ég að segja... og erum við búnnir að gera date.. til að hrofa á Julekandederinn þegar Morten er komin til landisns aftur... og fá okkur audda öl við það..

en að allt örðu.. .það er ótrúlegt hvað mar getur hjólað beint þó svo mar sé búinn að drekka nokkra bjóra... veit að það er þriðjudagur... en vot the hell.. en mig nennti ekki að setja lugtirnar á hjólið þegar ég var að koma heim.. og hvað hiti ég rétt eftir að ég lagði af stað.. nema hvað lögguna.. og vippaði mér af hólinu.. og labbaði fram hjá þeim... til að fá nú ekki mega sekt... en þeir voru svo voða mikið að leita að einhverju... sennilega dópi.. enda voru þeir með hund við þetta líka.. .þannig að þeir höðu ekki tíma til að angra mig...

já og enn annað.. ein besta vinkona mín.. hún Anna Bogga er í borgini.. að fylla á heilann sinn.. með visku... og ættlar að gista hjá okkur eins og eina nótt á föstudaginn... stuð stuð stuð... og slatti af bjór..... fyllum nú dömuna almennilega einus sinni... ha... hva segið þið um það...
hann Mummi klukkan 02:20

27.8.05

.pizza

Ég var að keyra niður Istergade... á leiðinni heim og sá þar pizza stað er kallast Beirút Pizza... og það fyrsta sem mér dat í hug var að þeir væru allaf með Sprengi tilboð á pizzum... muahhaha muahahaha
hann Mummi klukkan 00:27

23.8.05

.lagabreitingar

þann 1 sept munu ganga í gildi ný lög, er koma við sektir og refsingar á umferðarbrotum.. þá er ég að tala um danmörku að sjálfsögðu... en þeir eru að fara taka í gildi klippikort og við 3 klip þá er kortið farið.. í 3 ár og hér eru nokkur af þeim brotum sem geta valdið einu klippi, og ekki bara það.. þú getur fengið meira en eitt klipp í hvert skiptí, hér eru nokkur dæmi:

* Ekur meira en 30% yfir hámarkshraða
* Ekur of nálægt næsta bíl
* Spennir ekki farðega undir 15 ára í bílnum
* Ekur yfir á raðuljósi
* Tekur frammúr þar sem bannað er að taka frammúr
* Eikur hraðan þegar verið er að taka frammúr þér
* Tekur framúr á gangbraut
* Ekur yfir járnbrautarspor eftir að merki hefur verið gefið að lest sé á leiðinni

og þeir eru líka að herða reglur varðandi ölvunar akstur:
við 0,51-1,2% prómill þá missir þú kortið
Meira en 1,2% prómill missir kortið í að minnsta kosti 3 ár

Sektir 0,51-2,0% prómill sekt=Nettó mánaðalaun X mælt prómill
meira en 2,0% þá er það fangelsi + Nettómánaðarlaun X mælt prómill

og svo það besta ef þú ekur með meira en 1,2 prómill 3 sinnum á 3 árum þá gera þeir bílin þinn upptækan og þú færð hann aldrey aftur.

þeir eru nettir þessir danir
sjá meira um þetta á Sikkerttrafik.dk
hann Mummi klukkan 12:08

22.8.05

.allt búið

jæja þá er orðið rólegt á heimilinu okkar... gesta gangur að mestu búinn nema að það á en lítil elska eftir að koma og gista hjá okkur eftir 2 vikur eða svo og þá bara í eina nótt... en þetta sumar er búið að vera rosalega gestkvæmt.. og er vægt til orða tekið.. byrjaði það á að móðir mín og systur á samt ömmu komu.. gistu þó ekki.. síðan komu tengdó... þar á eftir lætu bræður sjá sig 3 síðan kom dabbin og hannsinn... var svo komið að ásu og finnsa.. og núna síðast þá kom Gaui, Harpa og GÍsli frá flagveltu.. og mætti segja að þetta er bara alveg bærilegt..

en er bongó blíða hérna í köben.. og er spáð eitthvað áfram... sjáum hvað þetta heldur... æ love the sun... jú og svo erum við á fullu að koma okkur fyrir í íbúðinni okkar og þrífa hina.. svo að við getum skilað henni..

okkur var boðið í mat í gær hjá tengda pabba og frú... og fóru þau með okkur á stað sem heitir Ankara og er tyrkneskur staður... og vá hvað það er gott að borða þar og ekki skemmir verðið hjá þeim fyrir... við tókum hlaðborðið... og gúffuðum í okkur eins og við gátum... og fóru allir sáttir þaðan út.. þarna verður líka farið aftur...

og núna tekur hversdags leikin við aftur.. enda sumarið senn á enda..
hann Mummi klukkan 11:47

18.8.05

.súmar

jæja þá er sumarið komið aftur.. og farið að verða 25 stiga hiti.. alla vega næstu daga... enda gott því það er gesthvæmt í kotinu... hann Gauji er hérna og svo er Harpa rétt ó lent og svo kemur hann Gísli síðar í dag.. þannig að nóg er af félagsskap hjá okkur skötuhjúunum... plön eru voða í lausu lofti hvað gert verður en það verður slatti..

við erum langt komin með að koma okkur fyrir á nýja heimilinu.. og allt við það að líta úteins og við erum búinn að búa hérna í áraraðir... gaman af því...

já og húddið okkar er bara þetta líka svona svaka fínnt.. bara...
hann Mummi klukkan 11:30

13.8.05

.fæðing

Ég get ekki verið minni en hún Árný mín með að stetja mynd af nýju tvúburunum... og hérna kemur hún
Betu burarnir

Þetta eru algerar dúllur... Og til Lukku með dömurnar Beta.. til lukku..

já og í dag þá var flutningum slegið á frest.. þar sem karvel var að nota bílin.. en ég hendist í þetta á morgun... fyrir vinnu... og fæ finnsan til að aðstoða minns í þessu... sjúddirarí rey...
hann Mummi klukkan 18:58

12.8.05

.dræver

já kallin er bara farinn að keyra hjá póstinum líka.. mér bauðst að að verða þjálfaður í að aka um og tæma póstkassa.. og ég bara þáði það... og núna er mar farinn að aka um allt og tæma póstkassana...sá rúntur em ég er á er númer 11.. og er hann í krkngum ráðhústorgið og vesterport.. og svo líka alveg út til valby.. og zoo svæðið.. og þarf maður að fara oft í sömu kassana.. enda nóg af pósti alltaf hreint..

já og svo er ég búinn að flytja að mestu leiti.. á bara eftir að fara með stæðstu hlutina.. og fær finnsi að finna smá fyrir þvi... bara smá.. eða einn hlutur sem mig vantar hjálp við.. hitt get ég alveg komið sjálfur.. já en ása og finnsi eru hjá mér núna framm á maánudag.. en þá ættla þau að fara heim til sín í kolding.. og vitið menn það koma fleyri gestir.. og það strax á mánudaginn.. en hann Gauji.. ættlar að koma og stoppa í viku tíma eða svo.. kemur líka vinkona mín hún Harpa.. á fimmtudaginn og svo má nú ekki gleyma aðal atburðinum þettað árið en hún Árný mín er að koma núna á sunnudaginn aftur eftir langan tíma frá mér..

og svo síðustu fréttir sem voru að koma.. hún Elísabet.. er búinn að eiga.. og það voru Tvíburar 10 og 12 merkur.. og það kom bara innbygður vökvunarbúnaður og svo var það 47 og 49 cm... Til hamingju Beta mín... til hamingju...
hann Mummi klukkan 02:35

8.8.05

.úff púff og sviti

ef maður hefur góða sjálfpintingar hvöt þá mæli ég með því að flyta á 4 hæð í hús sem hefur ekki lyftu.. er núna búinn að labba upp stigan 45 sinnum með kassa og annað þessháttar.. eina var líka til að gera þetta geggjað þá þufti ég að bera haug af dóti í ruslið.. þannig að hef líka verið að fara með margar ferðir í ruslið..

ég er búinn að vera að dunda mér þessa helgi við að flyta allt okkar hafurtask í þessa líka sætu íbúð í vesterbro..eða eins og ég hef sagt áður í deadcenter.. í köben.. þannig að núna verður ekki langt að fara hverst sem er þegar kemur að því að fara í bæjinn.. tralalalala...

ég er svona langt komin með það að taka upp úr kössum og koma okkur fyrir.. en bíð með þetta mikilvæga.. eins og skraut og þess háttar þar til koana kemur og tekur þær áhvarðanir hvað best er að hafa þá hluti.. ég hef bara ekki sens fyri þvi...bara ekki baun.. hehe ég sagði baun.. skondi þar sem mar er í baunalandi.. hehehehehe


vá hvað maður er með lágan húmors þröskuld.. heheh.. en hey.. ég er alla vega að skemmta mér..

já þá er komið að þvi... hann Bjartur...

bróðir minn er orðin gamall kall.. en í dag verður hann 30 ára... já spáiði í þvi.. .30 ára... nú veðrur hægt að bögga hann með þvi.. en Bjartur minn.. mikið rosalega ógurlega til hamingju með daginn.. og gerðu svo eitthvað sniðugt í tilenfi dagsins.. ég mun alla vega drekka bjór þér til heiðurs.. og bró.. æ love you.. bara geggjað... og koma svo...
hann Mummi klukkan 00:59

7.8.05

.ammæli

já langar mig að óska henni Nathalie Sunnu til hamingju með 6 ára afmælisdaginn hún er orðin stór sú littla ha..eigðu rosagóðan afmælisdag snúllan mín
Nathalie Sunna
Þessi mynd var tekin í fyrra og er hægt að sjá meira af þeim á síðunni hennar á barnalandi
hann Mummi klukkan 18:07

6.8.05

.mænds

Var ekki alveg að nenna að pakka niður.. og settist smá við tölvuna.. og er búinn að henda inn slatta af myndum.. sem tekknar hafa verið í sumar... og má finna hérna til hliðar í stafrænugeimsluni einnig á þessum hlekk

þurfti að henda slatta af örðum myndum til að gera pláss.. en núna ættu allir að gera fengið eitthvað til að skoða.. mikið er búið að gera í sumar.
hann Mummi klukkan 03:16

3.8.05

.rán

Ég var að skoða á rúv frétt um hvað það er verið að stela mikklu í vinnuni minni (Post danmark) og einnig sá ég þetta í dagblaði hérna í köben. og langar mig að bæta smá við þessa frétt.. það sem ekki er talað um er að það vinna 24.000 manns í póstinum og við meðhöndlum 5 miljón sendingar pr dag. þeir tala um að við náum um 30 manns á ári fyrir þjófnað.. þeir tala heldur ekki um að öll mál sem koma upp hjá okkur fara fyrir rétt og er lágmarks dómur 1 ár í fangelsi fyrir að stela í póstinum.. töluvert er um að fólk er aðsenda afmæliskort hérna og þá eru settar hveðjur utan á umslagið og danski fánin þá veit sá sem sér umslagið að það er kort í því og mikklar líkur á að það innihaldi peninga og því miður slatti af þeim er að hverfa... það var heldur ekki talað um að það eru um 50 rán á pósthúsum hjá okkur á ári sem og að póstburðarmenn eru rændir nokkuð reglulega.. þannig að þetta er nú víðáttumeira en mar heldur.. en ég er svo sem ekki að afsaka póstin en málið er að við getum ekki tekið starfsmenn fyrir þjófnað nema að vera 101% vissir í okkar sök þannig er nú það.. en hérna má sjá fréttina hjá rúv og sést mikið af mínum vinnustað þar.. sem er KHC... fréttinn
hann Mummi klukkan 23:36

1.8.05

.pása

jæja þá er komin smá pása á gestum en drengirnir voru að fara út á flugvöll til að fara taka aftur þátt í veruleikanum.. eftir að hafa verið í afargóðri afslöppun hjá mér og bara skemmt sér úber vel...mikið var nú gert af sér.. og trallað og djammað.. og fara þeir með gott veganesti heim í farteskinu...
því miður þá var veðirð ekki það besta handa þeim en þeir fengu alla vega að upplifa almennilega rigningu.. en hérna rigndi um daginn 50 mm á 30 mín.. góður slatti það..en það er ekki á allt kosið.. enda var það nú ekki bara veðrið sem menn voru að sækjast í...

en hjá mér er frammundan að pakka niður og hefja fluttning á nýja staðin en fyrir þá sem það skilja þá erum við að flytja inn á Vesterbro svæðið.. væri hægt að kalla það 101 reykjavík líka svo fólk skilji betur.. eða meira svona 100,1 þar sem við erum í hjarta bæjarins..

já og fyrir ykkur sem föttuðuð ekki síðasta blögg þá er að finna í því hlekk inn á síðu sem þýðir mors.. og svo er bara að copy og pasta.. þetta þanngað en ekki hlekkin sjálfan... og koma svo....hvað verða nú margir sem fatta þetta...
hann Mummi klukkan 20:14